


Já páskarnir búnir, við komin aftur í bæinn og meira að segja búin að vinna einn dag, ég allavega. Áttum yndislega daga í Borgarfirðinum í bústað sem við leigðum. Fórum í sund í Kleppsjárnsreykjum, eða hvað þessi "bær" heitir nú. Röltum um svæðið, fórum á rólóinn og röltum niður að Hvítánni og þar var kastað endalausu grjóti útí. Hildur, Heiðar og Alda Kristín komu til okkar á laugardeginum og þá var grillað og það var bókstaflega hlaðborð og allir átu á sig gat. Páskaeggjaleit á páskadag og mikið nammi borðað, spilað á kvöldin og meira að segja EK losaði sig við strákastælana og fór í dúkkó með Öldu Kristínu, já þetta geta strákarnir þegar vinirnir eru ekki nálagt, haha. Í gær var raðað út í bíl, þrifið og lokað og læst og brunað í höfuðborgina á ný. Já ég var nú búin að hugsa eithvað voða sniðugt að skrifa hérna, en minnið er ekki betra en svo að ég bara man ekki hvað það var, þannig að þetta verður bara að duga.
2 ummæli:
Oh hvað Páskarnir hafa verið góðir við ykkur!!!
yndislegt að komast úr borgarstressinu og eyða páskunum í bústað. Við skelltum okkur í útilegu í eina nótt um páskana, frábær tilbreyting.
Skrifa ummæli