fimmtudagur, apríl 03, 2008

Kominn tími á smá tuð

Tuð já, við versluðum klósett hjá Agli Árnasyni í janúar, en það var reyndar ekki til hjá þeim en átti aðkoma innan 2 vikna, við hinsvegar fengum ekki klósettið fyrr en í mars, og þeir alveg lofuðu að það væri allt til, skálin,setan, gindin og spjaldið. Við förum þarna upp á höfða og eftir langa leit fyndum við loksins lagerinn. En þá var spjaldið ekki til, ég segi þeim að senda það heim þegar þar kemur, svo bare gerist ekkert. Ég hrigi margofft en fæ aldrei samband við neinn og mér er margofft lofað að það verði hringt í mig, sem gerist notla aldrei. Náði loksinns í gegn á mánudag og hann bara þetta er búið að vera til allan tímann ég sagði honum þá að senda mér þetta, en þetta er ekki komin núna 3 dögum seinna. Ég get alvg orðið brjáluð á svona þjónustu ef maður má kalla það það.
Síðustu helgi var Andri Þór hjá okkur og gisti, okkur Einari datt í hug að skreppa með strákana í Fjölskyldu- og húsdyragarðinn þar sem kennarar eru með frítt þangað og í sund. Dagur B. x- borgarstjóri vildi gera svo gott fyrir kennara og fengur þeir þessi hlunnindi, nema hvað það er bara frítt fyrir kennarann sjálfan en ekki fjölskylduna. Fyrigefið en hvað ætti einar að vera að fara þarna einn og enda svo að borga 2500 kr fyrir mig og strákana. Sorry mér finnst þetta fáránlegt, æðisleg hlunnindi eða þannig. Hlunnindi sem ég fæ dugir þó fyrir okkur fjölskylduna og er mun veglegra en þetta.
Svo verð ég að segja ykkur frá mínum frábæra heimilislækni, málið er að ég er búin að vera með hausverk nánast stanslaust í 10 daga og mjög slæmann núna síðustu 3 dagana og bara ógeðslega slöpp. Ég mældist rétt fyrir páska með ansi lágan blóðþrysting eða 85/55 og samkvæmt því sem ég hef lesið og heyrt er það ansi lágt og mér ráðlagt að tala við lækni. Ég skrapp í gær þar sem ég hélt að það gætu verið tengsl þarna á milli. Doksi sagði að það væri ekkert að þessum blóðþrystingi og að ég myndi bara lifa lengur. Ég kæri hann bara ef ég dey snemma, haha. Og með hausverkinn ég á bara að hætta að pæla í honum. Ætli hann hafi nokkuð fengið hausverk, spurning. En það er nú bara þannig að maður leiðir svona ekki hjá sér mjög lengi. Já og ég á bara að slappa af, hreyfa mig og já hætta að pæla í þessu.
Ég er að fara í fljótandi djúpslökun og nudd í Blue laguna spa á laugardaginn það kanski hjálpar mér eithvað, þótt ég sé alls ekki svo slæm af vöðvabólgu nú en áður.
Held það sé ekkert meira sem ég þarf að tuða yfir eins og er allavega. jú auðvitað er bensínverðir ansi hátt og ég er bara mjög sátt við það fólk sem leggur sig fram í mótmælum, sérstaklega eftir að þeir fluttu sig niður í bæ og ég vona virkilega að það beri einhvern árangur. Kreppan sjálf hefur sem betur fer ekki farið illa með okkur enþá allavega. Við erum að sleppa vel með lánin okkar annað en margir aðrir. Maður þekkir til þæmi þar sem afborganir hækkuðu um 200þ bara núna um mánaðarmótin, sem er notla bara ekki á fólk leggjandi. En við erum ekki ein af þeim og ég segi bara 7,9, 13, bank bank bank.
Segi þetta gott í bili og verið svo dugleg að kommenta ef þið þá nennið að lesa þetta allt.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kvitt kvitt
já veistu ég er sammála þér - væri gaman fyrir einar að vera einan í húsdýragarðinum haha :) skoða dýrin og svona hahah.....
og áfram með þessu mótmæli er svo sátt við þau :)
Harpan

Unknown sagði...

Bara hætta að pæla í höfuðverknum!!?? þetta er furðulegasta læknisráð sem ég hef heyrt! Vona að slökun í spa virki eitthvað ef þú ert með vöðvabólgu farðu annars til einhvers annars læknis ef þetta heldur áfram.
Við erum flutt og búin að koma okkur vel fyrir, erum rosalega ánægð með þetta. Ég hringi í ykkur fljótlega.
Knús á ykkur.

Eva sagði...

Þú ert alveg merkilega "heppin" stundum. Ég á bara ekki til orð yfir Agli og "þjónustunni" þar.

Þetta með húsdýragarðinn er nú bara grín! Að gefa fullorðnum manni frítt í garðinn en ekki fyrir börnin? Ótrúlegt, mér þætti viturlegra að hafa frítt fyrir börnin en foreldrarnir greiði eins og er nú á sumum stöðum.

Ég vona annars að þú sért farin að jafna þig á hausverknum, kannast sam við svona heimilislæknamál! Enda hef ég ekki farið til hans síðan þetta gerðist!