fimmtudagur, apríl 10, 2008

Bíð spennt eftir sumrinu

já er ekki kominn tími á sumar, bara vika í sumardaginn fyrsta og ég er alveg til í að sólin verði bara á lofti núna næstu mánuðina. Vaknaði upp við yndælan fuglasöng í morgun og sól, það er nú enþá smá kallt en manni hlínar um hjartarætur. Já væmni en það er alveg að koma sumar og bara 59 dagar í noregsferðina.
em hausverkurinn er að skána, er bara búin að fá hausverk 3svar í þessari viku, þannig að það er á réttri leið.
Dekrið í Blue lagune spa var æði síðasta laugardag, mæli sko alveg með þessari meðferð. Það var smá skrítið að vera í svona þyngdarleysi en maður var fljótur að venjast og þarna flaut ég í hringi í 45 min, fór svo í góða sturtu og síðan í klukkutíma alnudd, já takk þetta var æði.
Smá saga af Agli Árnasyni, en ég reyndi að hringja þangað í dag þar sem ég var ekki enn búin að fá spjaldið. Ég var látin bíða og bíða og bíða og bara fékk ekki samband við neinn ekki einusinni yfirmann. Ég smellti saman bréfi með hjálp Evu (takk) og sendi á forstjórann um kl 15 í dag. Var svo hringt í mig kl 17 og þeir viðurkenndu sína lélegu þjónustu og báðust afsökunar og hálftíma seinna var dinglað hérna og ég fékk spjaldið mitt. Vá þetta tók aðeins 3 mánuði. Ja þeir meiga eiga það að þeir viðurkenna laka þjónustu og gengu frá þessu í dag, en ég stór efa að ég eigi viðskipti við þá aftur og ég mun alveg öruglega ekki mæla með þeim.
Á morgun er svo starfsdagur hjá mér og á ég að sitja fyrirlestra um framúrskarandi þjónustu og eithvað annað sem ég man ekki eins og er. Já það er nebbla svo gaman að sitja fyrirlestra, geisp. Vona sammt að þetta verði bara gaman, er sammt ekkert allt of bjartsyn. En já þetta er staðan á mér í dag.

4 ummæli:

Eva sagði...

Mín var ánægjan en það er gott að það sé loks komin endir á þetta mál! Tók eins og þú segir, bara 3 mánuði :p

Unknown sagði...

Við fengum páskaglaðninginn frá ykur í gær, takk innilega fyrir okkur, mikil gleði á heimilinu að fá íslenskt nammi :) Rosalega er hann EK duglegur að skrifa, frábært. Gott að þið séuð loksins komin með klósettið og gott að hausverkurinn sé að lagast þó að þrisvar í viku sé nú ekkert neitt BARA heldur frekar þrisvar sinnum of oft!! Gott að sumarið sé að koma á Íslandi. Hér er reyndar óvenju kalt miðað við árstíma segir fólk en á þó að vera 19 gráður um helgina, verst að ég þarf þá að vera inni að læra :(
ok er að verða soldið lant komment held ég hringi bara í þig um helgina!

Unknown sagði...

Ég gat ekki hringt um helgina því ég get ég ekki hringt utanlands úr gemsanum og við finnum ekki heyrnatólin til að tengja við tölvuna svo ég get ekki notað skypið, allt frekar óskipulagt eftir flutningana og ég hef ekki tíma í skipulagningar,er í lokaprófum. Anyway, ertu til í að biðja mömmu að hringja í mig. Er í prófi til 12 s.s 8 á Íslenskum, eftir kl 8.

Nafnlaus sagði...

kvitt kvitt :)