
Já þá er komið sumar og maður vonar að þetta verði gott sumar og ég hef bara mjög sterkan grun um að svo verði, þar sem ég er þegar að kafna úr ofnæmi. Já ég hnerra í einn og er alveg stífluð upp í haus og tilheyrandi. Ég á tíma hjá unni Steinu eftir mánuð og ég vona virkilega að hún sé komin með eithvað sterkara "dóp" handa mér eða búin að semja við landlækni og TR um að niðurgreiða meðferð handa mér. Maður má alltaf vona þótt ég sé nokkuð viss um að svo sé ekki.
Bensín á ca 150 kr og dísel kominn uppfyrir 160kr, eigum við að ræða það eithvað. Reyndar þá er líterinn af bensíni i 180kr í noregi, en það mætti alveg lækka hann aðeins hjá okkur. Það er bara rán að setja bensín á bílinn. Og ég styð vörubílstjórana heilshugar í sínum mótmælum. Fór reyndar útí öfgar í gær, þá í alla staði er mín skoðun. Bæði aðgerðir lögreglu, bílstjóra og almennings. En eins og hann Einar minn segir þá erum við Íslendingarnir bara að læra að mótmæla og lögreglan að læra að taka á því. Ég held ég verði bara að vera sammála honum í því.
Já já svona er þetta nú.
Hann Elías Karl okkar fékk tvíhjól í sumargjöf og í fyrstu var hann bara hundfúll og vildi bara fá spidermann dót, en svo fór hann að taka gleði sína. Hann var með einhverjar væntingar um að hann myndi bara fá dót. Þóra (amma) kom og gaf honum hjálm í stíl við hjólið og svo fórum við niður í laugardal að kenna barninu að hjóla. Þetta gékk nú allt vel, hann er nú ekki alveg búin að ná tökonum enþá en þetta kemur allt. Svo kenndi hann okkur Einari um ef hann datt, já það var alveg öruglega okkur að kenna, haha. Það eru nokkrar myndir í albúminu hanns og ansi skemmtilegt myndband á síðuni hanns tekið í dag. Endilega kíkið á það líka.
1 ummæli:
Gleðilegt sumar! Sé að dagurinn hefur verið góður hjá ykkur hingað til og drengurinn tekið gleði sína :-)
Hafið það gott það sem eftir er dagsins!
Skrifa ummæli