Já það er Ameríku ferð framundan. Við hjónin ætlum að skella okkur í 4 daga verslunarferð til Minniapolis. Og djöfull hlakkar mig til. Já þetta er svona, maður skellir sér út í miðri kreppu, haha.
Við vorum búin að pæla svoldið í að fara út og svo bara var þetta ákveðið alveg einn tveir og tíu. Ég er alveg að missa mig úr spenningi, þetta verður líka í fyrsta sinn sem við verðum alveg alein, ekki að fara að hitta neinn, eða með neinum, bara tvö ein i hinni stóru Ameríku að versla úr okkur vitið. Eða þannig, þið sem þekkið mig vel vitið að ég er alltaf voðalega lengi að finna mér eithvað, en ég efast ekki um að ég finni nóg á orminn minn sem er að vaxa uppúr öllu núna, og öruglega einhver flott skólaföt. Jeii
Svo er það bara vinna vinna vinna og læra, en það er próf eftir 13 daga og er ég smá kvíðin, þar sem 25% af prófinu er í því sem ég er lélegust. Næsta önn er með annari stefnu, en ég er að íhuga ða taka smá U beyju og fara í nuddið, eða byrja á sérgreinunum á þeirri braut og sjá hvort ég komist ekki alla leið í Nuddskóla Íslands eftir "nokkrar" annir.
Annars er hún Ísold í samræmdu núna og þau 2 próf sem eru búin hafa gengið alveg ágætlega og núna er bara læra, læra,læra hjá henni. En ég trúi ekki öðru en að hún rúlli þessu upp.
Þetta er allavega það sem er að frétta í dag.
miðvikudagur, apríl 30, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Mér lýst vel á þetta hjá þér með U-beygjuna. Um að gera að þreifa fyrir sér og finna það sem manni hentar best og hefur ánægju af. Lætur mig bara vita ef það er hugsanlega eitthvað sem ég get aðstoðað þig með fyrir prófið... hvort tíminn verði mikill er annað mál en a.m.k. veistu af mér.
Annars vona ég bara að þið skemmtið ykkur æðislega vel úti! Ég væri alveg til í að vera laumufarþegi í ferðatösku :p
Skrifa ummæli