föstudagur, ágúst 01, 2008

Ágúst

Já sumarið er bara alveg að verða búið, við erum búin að vera alveg á biljón, en það var mikið um matarboð og hittinga, ættarmót, myndartaka og fleyra á meðan Ísól og Snorri og Kiddi og Krissa voru á landinu. Það er ekki búin að vera pása eina einustu helgi og verður ekki fyrr en í september. En það styttist í að ég fari aftur í frí og það verður sko ljúft. Ætlum aðeins að skjótast til Dk og svo vera heima í rólegheitum og svo byrjar litla dýrið í skólanum núna og alveg hörku fjör.
En í dag eru 13 ár síðan hún Eva Victoria hvarf í Rana elva og þarf ég aðeins að minnast hennar. Ætli maður skelli ekki einu blómi í Hvítánna á eftir.
En ég segi bara elskiði friðinn og gangið hægt um gleðinnar dyr, og akið varlega um helgina.

Engin ummæli: