mánudagur, júlí 07, 2008

Sumarfríið og pappírsbrúðkaup

Já þá erum við búin að vera í sumarfríi, vorum í Tromsö í Noregi í 2 vikur, og áttum þar æðislegar stundir, fóru á alla þá staði sem ég átti heima og helstu söfnin og skoðuðum ansi margt. Strákarnir mínir bara mjög sáttur og þótti mjög gaman að koma þarna út og skoða staðina þar sem ég eyddi 10 árum af minni ævi. Við hittum líka helling af fólki, löbbuðum rosalega mikið og EK stóð sig svakalega vel þótt hann hafi verið orðin ansi þreyttur eftir fyrstu vikuna. Við fórum líka til Kårvika að heimsækja farmor og svo til Skaland að heimsækja mormor og skoðuðum heimsinns stærsta tröll á Senja. EK var með tröll á heilanum í marga daga og er það eginlega enn. Við fengum mjög gott veður það var nú ekki alltaf sól en sammt hlítt og fengum líka nokkra alveg dúndur sólardaga, hvítinginn ég fékk meira að segja lit. EK lærði nokkur orð og var alveg með það á hreinu hvað hann átti að segja til að fá ís, enda voru Kari og Kjell mjög örlát á ísinn. Barnið tengur noreg eflaust við ís. Eftir 2 vikur úti komum við heim og allt rifið uppúr töskum og þvegið, ég hentist strax í að baka því Kanada búarnir Ísól, Snorri og börn komu í heimsókn og kotið ansi tómlegt. Ég mætti einn dag í vinnu og svo var brunað til Húsavíkur og á allri þeirri leið mættum við ekki einni löggu á einni stæðstu ferðamannahelgi íslands, hmm. Áttum góðan dag og kvöld með pabba og co þar en pabbi var að halda uppá afmælið sitt. Það var grillað og farið í stígvélakast og fótbolta og svaka fjör, svo var sofið og brunað aftur suður, mættum reyndar 6 löggum á leiðini til baka. Maður var ansi þreyttur eftir þetta ferðalag og ég var sofnuð 20.30 í gær og svaka migluð í morgun þegar maðurinn minn vakti mig með knús og gjöf. Sko kallinn hann mundi sko eftir brúðkaupsafmælinu og ég fékk svakalega fallegan hvítagulls kross með demanti, alveg æðislega sætann. Svo var það vinna og síðan skelltum við okkur út að borða í kvöld en Ísold kom heim að passa litla dyrið.

2 ummæli:

Eva sagði...

Innilega til hamingju með daginn :) (í gær)

Guðný Pálína sagði...

Hæ Karitas!
Ég rakst á bloggið þitt á einhverju rápi um bloggheima og fannst voða gaman að kíkja á það. Flott hjá þér að taka familíuna með til Tromsö, þangað fór ég líka einu sinni með Hrefnu, Andra og Ísak en það er orðið mjög langt síðan, held að Hrefna hafi verið ca 17 ára þá.
Ég rekst ekki oft á einhverja (íslenska) Tromsöværinga en hitti Hósu um daginn og það var voða gaman. Helga (mamma Rebekku) kom líka í heimsókn síðasta haust en mömmu þína hef ég ekki séð í mörg mörg ár. Það sem tíminn líður.
Bestu kveðjur til ykkar allra,
Guðný mamma Hrefnu.