miðvikudagur, júní 04, 2008

Það er okrað á túristum

Það styttist óðum í langþráða Noregsferð, ég hlakka ekkert smá til að komast "heim". Það verður svo gaman að fara að hitta allt fólkið og syna Einari og Elíasi Karli hvar ég ólst upp og fallegu Eyjuna mína þarna í Norður Noregi. En vá, núna verðum við svona aðeins að túristast þarna, ætlum að fara á þessi helstu söfn og svo með lyftuni upp á fjall og vá hvað þetta er allt dyrt. Hef aldrei áttað mig almennilega á því hvað er verið að okra á ferðamönnum. Mér finnst líka fáránlegt hvað er dyrt fyrir börn á mara staði líka. Við sleppum sammt engu, bara borgum og njótum þess að vera þarna að skoða. Svo er líka margt sem við munum skoða sem kostar ekki krónu m/gati. (norska krónann er með gati, hihi)
Það er búið að vera svo gott veður undanfarið og grasið sprettur, ég er búin að slá 4 sinnum núna og þetta er bara eins og frumskógur eftir þessa smá skúra sem koma öðru hvoru. Ætlunin er svo að taka eithvað af þessu góða veðri með til noregs, þar sem það er búið að vera frekar kallt þarna fyrir norðan.
Ég fékk fastráðningu í dag, þannig að ég er alsæl með það svona í miðri kreppu. Var alveg til að bæta gærdaginn sem var ekki uppá marga fiska. En hann byrjaði á að við sváfum yfir okkur, en ekkert of mikið og ég hefði mætt í vinnu á réttum tíma ef ég hefði ekki asnast til að bakka á annan bíl í leikskólanum. Þetta var bara algert klúður, ég var að bakka úr stæðinu og þessi bíll stoppa á götuni beint fyrir aftan á blindum bletti þannig að ég sá hana ekki. Bara pirrandi sko, jújú ég var í órétti og ég er alveg sátt við það, en bara oggu poggu pínu pirruð útí þessa gellu að stoppa á götuni og ég með bakkljósin á. Arg. Svo til að toppa allt, þá hringdi Ásdís og tilkynnti mér að dagurinn yrði dyr eða færi hátt í 100þ að rífa teinana útúr Ísold og þá bara í efti góm. Þetta endai í 75þ sem er notla bara fáránlega dyrt, meina ég á ágætis töng útí bílskúr og það hefði ekki kostað krónu að kippa þessu útúr henni, haha. Nei maður myndi nú ekki gera það en við skoðuðum hvða þetta kostar í raun og veru og það var ekki nema 36þ, bara heljarinar álagning hjá þessum tannlæknum.
Jæja lífið heldur áfram, og ég vina að peningar fari að vaxa á trjám, maður má alltaf vona er það ekki.

1 ummæli:

Eva sagði...

Það er ekkert smávegis sem hefur gengið á hjá þér á stuttum tíma :p

En hafðu það gott um helgina!