miðvikudagur, maí 21, 2008

Æðisleg Bandaríkja ferð og til hamingju united menn

Við einar flugum til Minneapolis miðvikudaginn 14 mai og lentum úti í sól og blíðu, kíktum í mallið aðeins áður en það lokaði og sváfum svo vel um nóttina. Fimmtudagurinn byrjaði á morgunmat á hótelinu og svo fór skuttlan með okkur í Wal Mart, þar var sko verslað, sérstaklega mikið af skrappi og öðru dóti. Skuttlan var upptekin þannig að við tókum taxa heim á hótel, stoppuðum í smá stund þar og tókum svo taxa í Target og lentum á sama bílstjóranum, bara fyndið í svona stóru landi. Þessi bílstjóri er frá Sómalíu og var í 5 ár í flóttamannabúðum áður en hann komst til USA og er búinn að búa þar í 2 ár. Maður með þónokkra lífreynslu. Í Target var sko líka verslað, svo fórum við yfir í geggjaða party búð, ég hefði lveg getað keypt hana alla en lét nokkra hluti duga, kíktum svo í eina enn búð þarna og svo í Toyrus, fengum svo lásí taxa heim. Tæmdum pokana á hótelinu og svo fórum við upp í mall sem var nú bara í 5 min göngufæri frá okkur, vorum þar fram á kvöld og slatti verslað. Enduðum í kvöldmat á Fridays og fengum rosalega góðann mat, fyndna var sammt að Einar var beðinn um skilríki við að kaupa bjór og greyjin skildu ekkert í þessari kennitölu á kortinu hanns. Föstudagur byrjaði líka á morgunverði og svo vorum við í mallinu í 7 tíma, þá var ég sko búin að fá nóg. Einar fylgdi mér heim á hótel og fór svo og keypti mat á Fridays og við átum það svo fyrir framan imban, alveg búin á því. Laugardagurinn var rólegur, við nutum þess að vera í sólini, röltum í rólegheitum um mallið og ég skellti mér í fótsnyrtingu, voða gott að láta líða úr löppunum, en svakalega kítlaði mig þegar hún byrjaði að svampa á mér yljarnar, haha. Endurnyjuð eftir það, versluðum pínu ponns, en töskurnar voru troðnar þannig að það þyddi ekkert að kaupa meira. Skiptum um föt á hótelinu og tróðum meira í töskurnar og fórum svo með skuttluni út á völl. Þar tók við bið í óvissu um að við kæmumst með vélini, en við fengum síðustu sætin og flugum heim. Náði reyndar ekki að sofa í vélini en það var útaf því að við vorum á svo asnalegum stað, ekki uppvið glugga og þessi nyju sæti eru ekki hönnuð fyrir "lítið" fólk, ég næ allavega ekki á hauspúðann. En ég náði að horfa á bíó mynd í nyja afþreyingarkerfinu og er þetta allt nokkuð gott, vantar nokkur smáatriði uppá til að fullkomna þetta. Ég sendi inn ábendingu á nokkur atriði og vona að þeir skoði það hjá New Icelandair. Ek var voða glaður að fá okkur heim og að fá pakka, svo er ég bara búin að þvo og þvo og þvo, sofa og vinna. Afrekaði að labba í og úr vinnu í gær sem getir 8,6 km. Í kvöld vann Man Utd evrópumeirtaratitilinn í fótbolta og var mikil spenna hér á heimilinu, einar alveg í skyjunum, ég ég bakaði snúða handa honum og Jóa. Glory glory Man United og skál í botn.
Það eru myndir á síðuni okkar frá ferðini út.

2 ummæli:

Eva sagði...

Skemmtilegar myndir og góð ferðasaga :) hefði alveg verið til í verslunarferð!

harpan sagði...

kvitt kvitt :) !!
takk fyrir að kaupa þetta allt fyrir mig ;)