sunnudagur, ágúst 24, 2008
Vika eftir af sumarfríinu
Það er bara vika eftir af sumarfríinu mínu, grát. En já, við skruppum til Danmerkur og bjuggum hjá Klöru og Jónasi, takk kærlega fyrir okkur. Fyrsta daginn skruppum við í laga strætóferð frá Dragör og niður í bæ. Kíktum á þetta sívinsæla Strik sem okkur reyndar fannst ekkert spes, allavega ekki mér. EK fékk að kaupa sér langþráð sverð og var hæst ánægður með það. Klara og krakkarnir komu svo með flugi frá íslandi um kvöldið og Jón Breki og Ek smullu saman strax. Daginn eftir vorum við í mestu rólegheitum heima, rosalega gott að taka svona algeran leti dag, sérstaklega þar sem það var rigning og þrumur og eldingar. 3ja daginn fórum við í dyragarðinn og JB og EK skemmtu sér konunglega og svo keyptum við á þá eins peysur, svaka flottir saman. Ég hittir Már bróðir og við röltum saman um einhverja flotta garða þarna sem ég man ekkert hvað heita, Einar og Ek fóru með Klöru heim. Laugardagurinn fór í Tivoli og var það alveg æði, Ek er alger tivoli sjúkklingur og fór að hágráta þegar hann ekki mátti koma með í stóra rússibanan. Þetta er nú í fyrsta skipti sem ég fer í svona rússibana og auðvitað lentum við frekst, en ég lifði þetta af og myndi hiklaust fara aftur. Á sunnudeginum ætluðum við í Bonbonland og vorum búin a ná okkur í kort á tölvuni og lögðum af stað, svo þegar við vorum búin að keyra dágóðan slatta stoppuðum við á bensínstöð og þau sögðu okkur til vegar, sem reyndar var svoldið skrítin. Stoppuðum svo hjá íbúðarhúsi og hann tilkynnti okkur ða við værum komn alveg norður og keyrt í vitlausa átt frá Köben, æði eða þannig. Við Ek heimtuðum þá að fara bara heim, en Einar sá svo allti einu rétta skilltið og ætlaði að bruna, en þá voru vegaframkvæmdir og engar hjáleiðir. Þannig að við fórum bara heim. Danir fá ekki mikinn kreditt fyrir sitt vegakerfi hjá mér. J og K voru búin að versla húsgögn og ég fór á fullt að hjálpa til að setja saman, enda eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Við vorum svo bara róleg síðasta daginn og flugum svo heim eldsnemma þriðjudagsmorguninn, sátt og sæl með þessa 6 daga í Dk. Þegar við komum heim tók við alger martröð. Það er leki í vegg hjá okkur og svo kom Sylgja frá Hús og heilsu að rakamæla og þá var bara 99,9% raki í /&&$%$/&/&$%$##" veggnum, bara risastór pollur, ég tók kasst hérna og reif niður flísar og svona, illa skorin og þreytt eftir það. Við búum núna í stofuni og það er allt í rúst. Mætti með Ek í skólann á föstudaginn og hittum kennarann, fengum stundarskrá og fleyra. Við röltum svo saman upp í höll að ná í keppnisgögnin mín. Síðan kom pipari frá tryggingunum og þeir koma hérna á morgun og byrja að brjóta vegginn. Við Ek skelltum okkur að versla og setja upp byggingarplast og svona til að reyna að koma í veg fyrir eithvað af rykinu þótt það smjúgi allstaðar. Í gær morgun hljóp ég 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Vildarbarna. Ég tók þetta á 70 min og 09 sek, nokkuð sátt miðað við að vera ekkert búin að æfa, en í fyrra fór ég þetta á 68,28. Við kíktum svo í bæinn og þá atburði sem við höfðum áhuga á, fórum svo aftur um kvöldið niður á Sólþylfar að horfa á flugeldasyninguna, sem var bara mjög flott eins og veljulega. Eva kíkti aðeins á okkur í draslið þegar við vorum komin heim. Og núna í dag er ég að fara að þvo öll fötin okkar, hverja vél þarf að þvo 3 sinnum, þannig að ég verð að þessu alla vikuna, spennandi ekki satt. En þetta tekur enda eins og allt annað. Ég vona bara að þeir verði fljótir ða rífa vegginn og koma í veg fyrir lekann og að ekkert meira komi upp. Þið sem lesið þetta megið senda mér dúndur orku strauma, allavega vel þegið, þar sem sumarfríið fer ekki í afslöppun.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Dúndur straumar héðan úr DK :) !!
Vonandi fer þetta vel með veginn.... og það finnst ekki meira. Mér finnst svo að þú eigir að skreppa í smá frí til mín við tækifæri :) saknaðarkveðjur
Knús HArpan
Ég held að það verði ekkert frí í bráð núna, kom í ljós að þetta er ekki tryggingarmál og þetta lendir allt á okkur. Takk fyrir straumana
Straumur straumur straumur! :)
Skrifa ummæli