Sæl og blessuð, langt síðan maður hefur bloggað eithvað. Við sofum enn í stofuni og með fötin okkar í pokum, æðislegt fjör sko. En við erum búin að vera dugleg að rífa og núna á bara eftir að skafa smá. Síðan tekur við að úða allt með efnum sem drepur niður alla sveppagró, síðan að múra og svo slétta veggina, smella plísaplötum á og svo bara setja upp nytt baðherbergi. Svo er það að fá sér nyjan fataskáp og koma öllu á sinn stað og núna ætla ég að vera bjartsyn og segja að ég verði komin með baðherbergi eftir mánuð. Skólinn er byrjaður og er ég í heimbrygðisfræði og líffæra-og lífeðlisfræði, áhugaverðir áfangar. Elías Karl er alsæll í skólanum og gengur vel, búinn að læra heima tvisvar. Ég er líka á fullu í Krotinu, fer reglulega í góða göngutúra og leita. Reyndar 2 vikna krotatörn framundan til að klára þetta. Ég er að fíla þessa aukavinnu í tætlur, takk Harpa mín fyrir ða koma mér inn í þetta.
Það er búið að ganga á ymsu í vinnuni en fullt af fólki að hætta sem var sagt upp í sumar og verkefnum dreyft. Undarlegt andrúmsloftið en vonandi fer það að skána, allavega fyrir jól. Annars er maður bara í gúddí fíling, rok og rigning nánast daglega, bara ekta íslenskt veður. Ég bara veit ekki hvað ég á að segja frá, var sko búin að blogga fullt um daginn en það klikaði eithvða og fór ekki inn og ég bara man ekkert frekar enn fyrri daginn. Þannig að ég ætla að segja þetta gott í bili.
mánudagur, september 22, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ég er farin að halda að haustin fari svona með okkur :p þegar hátíðarnar nálgast vill svo oft birta til (hjá sumum amk) :-)
Gott að þér líka þessi vinna :)
mér fannst hún æði :)
knús yfir til þín
Harpna
Skrifa ummæli