Heppnin fylgir mér ekki og gerir það sjaldnast. Við erum enn í stofuni, en ég sé fram á að fara að kaupa í vegg í dag og vonandi getum við byrjað að vinna í þessu um helgina og þá kanski verðum við komin með baðherbergi eftir mánuð. Á miðvikudaginn skaust ég aðeins niður á Suðurlandsbraut, nema hvað það var keyrt á bílinn minn og stungið af. Ég auglýsi eftir vitnum, sem voru inní eða hjá Lyfjaveri Suðurlandsbraut 22 á miðvikudaginn 1/10 milli 12:15 og 12:25. Það er vitað að þetta var kona á ljósum bíl, en það eru skiptar skoðanir með bílnúmerið og tegund. Mín heppni er alveg til að ganga frá mér á tímabilum. Það var sagt við mig hérna í vinnuni, ok húsið bilað, bíllinn klesstur ertu viss um ða maðurinn þinn sé í vinnuni. Við skulum nú vona það að hann verði ekki skemmdur líka.
Svo verð ég nú aðeins að móðgast útí Staffa félagið hérna sem leigir salinn sinn fyrir allar veislur NEMA 20 og 25 ára afmæli. Þar fór það.
Ég er þessa dagana að velta fyrir mér heilbrygði og frumum, gaman að því.
Í gærkvöldi kom hann bróðir minn til landsinns og ég var nú svo góð að sækja hann, nema hvað það snjóaði í Reykjavík. Ég hélt nú bara að ég myndi ekki komast alla leið, en þá var bara svona slæmt í hverfinu okkar en lagaðist um leið og ég kom að sprengisandi. Þá hætti ég að hökkta í spólvörnini. Svo nottla bara hált uppí Grafarvogi þegar við komum þangað, það var síðan voða gott að leggjast uppí rúm kl 02:30 í nótt. Manni langar nú bara í jeppa þegar það er svona veður, svona aðeins til að leika sér. :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Já, þetta er merkilegt!
Vonandi finnst /)(&(/& konan sem keyrði á bílinn þinn.... skil ekki fólk sem keyrir í burtu....
knús knús
Skrifa ummæli