
Það eru 2 mánuðir og 2 dagar síðan ég varð fyrst vör við rakann í veggnum, hann var síðan rifinn með öllu öðru tilheyrandi og núna í kvöld vorum við að flytja inn í herbergið okkar aftur. Pálmi frændi kom í síðustu viku að hjálpa okkur að setja upp vegg og svo málaði ég herbergið okkar um helgina og bónaði gólfið í gær. Það er reyndar ekki kominn fataskápur en mikið ofboðslega er gott að vera komin inn í herbergi aftur. Þá get ég líka farið að þrífa almennilga í stofuni og þetta veðrur svona aðeins heimilislegra. Baðherbergið tekur einhvern meiri tíma en vonandi verðurm við komin með þetta í lag fyrir afmælisrununa. Svo þarf ég líka ða sökkva mér ofan í lærdóminn en mesti tíminn er búinn að fara í þessa íbúð okkar. Við erum líka svo heppin að eiga æðislega nágranna og við höfum fengið að fara í sturtu þar, reyndar ég oftast, þar sem það er ég sem er alltaf að skíta mig út í þessari vinnu, Einar fær lítið að komast að í að hjálpa til. Ég ætla ekkert ða fara út í þetta kreppuástand hérna á klakanum, bara niðurdrepandi það. Það er líka ymislegt að gerast í vinnuni en ég ætla ekki heldur út í þá sálma. Bara allt að fara fjandans til, eða svona um það bil. Ef við komumst útúr þessu heil og ekki búin að missa allt þá er ég bara mjög sátt. En við erum enn í mjög góðum málum. 7-9-13, bank, bank, bank.
2 ummæli:
Já líst rosa vel á herbergið :) en mér líst hinsvegar mjög illa á þessakreppu..... en þetta reddast vonandi :)
knús á þig og þína
Hæ sæta. Alltaf sami krafturin í þér. Ekki að spurja að því. Og by the way. Mér finnst liturinn græni á veggnum geggjóttur. Enda hef ég alltaf sagt að allt sé vænt sem vel er GRÆNT....
Skrifa ummæli