sunnudagur, október 19, 2008

Færsla númer 160

Ekki átti ég von á því að mér myndi takast að halda út bloggi svona lengi, ég er kanski alveg sú duglegasta en það koma nú færslur öðruhvoru.
Við fórum á föstudaginn að kaupa flísaplöturnar og jújú þær voru búnar að hækka vel í verði sína í síðasta mánuði, úff. Ég var að reikna saman að þetta er nú þegar komið upp í ca 250.000 kr takk fyrir. Og ekki erum við búin að borga einum einasta iðnaðarmanni. Við værum öruglega farin á hausinn ef við/ég væri ekki sovna helvíti handlagin. En þetta er ekki enn búið og það er alveg merkilegt hvað þessir peyjar í byggingavöruverslunum vita lítið um það sem þeir eru að selja, það fer alveg gífurlega í taugarnar á mér og ég reyni alltaf að finna einhvern fullorðinn sem virðist vera með eithvað á milli eyrnana. Éf fékk lánaða búkka og hjólsög hjá Pálma frænda í dag, hlammaði svo EK fyrir framan dvd og svo fór ég út að saga til plöturnar og á bara eftir að saga 2 til að geta byrjað. svo kansi 4 í viðbót þegar kemur að frágangi, íííhhhhhaaaaa. Þetta er sko allt að ganga, eða vonum það. Ekki fleyri uppákomur, takk fyrir. Svo er maður að reyna að læra inn á milli og stefni ég á að taka fyrsta "stöðu"prófið núna í vikuni, það er reyndar opið miklu lengur, en betra að taka það sem fyrst. Svo er það að skipuleggja smá Halloween gleði og svo afmæli og svona, alltaf nóg að gera hér bæ.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

TIL HAMINGJU MEÐ FÆRSLU 160 !!
Þið eruð svo ótrúlega dugleg að gera þetta allt sjálf, ég veit hvert ég leita þegar ég kaupi méríbúð og vantar iðnaðarmann hehe. Þú ert svo handlagin..... ohh leiðinlegt að missa enn og aftur af partýi og afmælum :(.... en við sjáumst vonandi um jólin 1x eða 2x ;)
Knús heim í kot

Eva sagði...

Vá, tvær færslur sem ég var ekki búin að sjá! Það er engin smá orka! En gangi þér nú vel með lærdóminn :)