mánudagur, október 27, 2008
Kreppa, kuldi og Halloween og svaka fjör
Já það er kreppa, og heppnin mín alveg í samráði við það. Auðvitað vantar enn plötur á baðið, en restin er í gámi niðrá bryggju og þeir fá ekki gjaldeyri til að leysa þetta út. En við erum að verða hálfnuð með þessa veggi okkar, og þetta er bara smá bassl alveg óþolandi þegar maður er orðinn pirraður. Svo er það nú þessi líka skítakuldi hérna á klakanum, ekkert spennandi sko, ég vil bara hafa alvöru vetur með fullt af snjó eða bara ekki. Ekki rok, snjó, slabb, rigningu og allt hitt til skiptis. Svo er maður á fullu að reyna að klára búningana okkar, en það er allt að koma og verður bara hörku fjör um helgina. Nóg að gera í vinnuni, svo kom píparinn í dag ða kíkja á þetta hjá okkur og við reiknum með að hann komi í næstu viku, komumst að því að það væri bara lang best, er líka ða reyna eins og ég get að læra, gékk bara vel í stöðuprófinu um daginn, á sammt mjög erfitt með að muna þessa latnesku, úff. En já þetta er staðan í dag.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vonandi þarftu ekki að bíða of lengi eftir plötunum :)
Skrifa ummæli