Það eru 9 dagar í jól og ég er ekki komin í neinn jólafíling. Kortin eru tilbúin, jólagjafirnar tilbúnar, skrautuð komið upp, sáum Coca cola lestina á laugardaginn (mótmælendur þurftu auðvitað að skema þá stemmningu) búin að þrífa allt hátt og lágt, piparkökubakstur í gær, komfektgerð í fullum gangi, svo smákökur ef þessar verslanir hérn fara að fá það sem ég þarf í þær (kreppuvesen í gangi) jólasveinarnir kíkja reglulega við á nóttini. Mikil spenning í gangi hjá EK fyrir jólin, síðasta skólavikann fyrir jólafrí núna hjá honum.
Við reiknum með að Ísold verði hjá okkur núna á aðfangadag sem er töluverð breyting, en verður þá í staðin hjá mömmu sinni á gamlárs, en það hefur nú nánast alltaf verið öfugt.
Já og svo eins og margir vita þá missti ég vinnuna, en ég er nú enn bjartsyn á að fá eithvað að gera, þó það væri ekki nema hlutastarf, nenni sko ekki að hanga heima.
En já það var nú ekki meira í bili, vona að þið hin séuð komin í meira jólskap en ég.
mánudagur, desember 15, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli