Já við settum baðkarið á sinn stað í gærkvöldi og ég skellti bara vatn í nokkrar fötur og setti í baðkarið og dembdi mér svo ofaní. Ég er nú ekki baðmanneskja en vá hvað þetta var notarlegt. Í dag fórum við í Fossá að sækja jólatré, kræktum okkur í þetta fína 2m tré. EK er líka búinn að skella sér í bað hérna en fannst ekki gamann að fá ekki að busla eins og venjulega, en við erum ekki búin að loka því að framan. Annars er maður bara að klára fyrir jólin og svo verður þrifsyrpan tekin í kvöld eða á morgun, þar sem ég nenni ekki að skúra aftur á aðfangadag. Já ætli þetta verði ekki síðasta blogg ársinns svo kemur annáll í byrjun janúar.
Gleðileg jól allir og það er nú allt í lagi að kommenta þó það væri ekki nema bara kvitt kvitt
sunnudagur, desember 21, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli