föstudagur, janúar 02, 2009

Annáll 2008



Janúar
Var frekar rólegur mánuður, veðrið eins og offt áður, stormur, rok, rigning, snjór, sól og allt það.
Árshátíð hjá Icelandair Group í Laugardalshöllini, Las Vegas þema alveg ofsalega gaman, fórum reyndar fyrst í fordrykk hjá Magnúsi framkvæmdastjóra.
Fór í speglun og fóru 2 dagar í að sitja á dolluni með fötuna í höndunum, mæli ekki með þessu.



Febrúar
Afmæli hjá Heiðari, svaka party skemmtum okkur rosalega vel og gistum þarna í Njarðvíkini.
Fórum í bíó, alveg met við nebbla förum svo rosalega offt í bíó, híhí



Mars
Við Elías Karl fórum norður á Húsavík til pabba og var það bara mjög fínt, komumst í flug, alveg ofsalega kallt fyrir norðan. En það var fínt að koma þarna og sjá staðin og fara í fjárhúsið.
Elías Karl fékk ristil, sjúkdómur sem fæstir fá undir 60 ára, alveg stórmerkilegt þetta barn okkar.
Fórum í bústað yfir páskana, alveg yndislegt að komast í burtu úr bænum, Hidur, Heiðar og Alda Kristín komu og voru hjá okkur eina nótt, var sko mikið eldað og grillað, átum á okkur gat. Páskaeggjaleit á páskadag og mikil spenna í gangi.



Apríl
Fór í djúpslökun í Bluelagune Spa, díses hvað það var notarlegt. Mæli sko með svona meðferð, þetta var 45 min í þyngdarleysis potti og svo klukkutíma alnudd, já ég náði varla jafnvægi þegar ég stóð upp aftur. En þetta jafngildir 8 tíma svefni og ég var alveg útkvíld í marga daga eftirá.
Starfsdagur hjá Fjárvakri, vorum allan daginn í Gullhömrum og það var bara mjög svo skemmtilegir og áhugaverðir fyrirlestrar í gangi.
Við urðum Catan sjúkklingar, þeir sem hafa spilað við okkur eftir það vita allt um það.
Elías Karl fékk tvíhjól í sumargjöf og hófst æfingin, vorum mest á tjaldsvæðinu og þetta tókst eftir mikið hlaup.



Mai
Fórum á opið hús á Lindarborg, mjög gaman og foreldrar barna frá öðrum löndum voru að kynna löndin sín.
Einar fór í Þórsmörk með skólanum og við Ek vorum bara í róleheitum.
Fórum til Minniapolis bara 2, áttum alveg frábæra 4 daga þarna úti og verluðum af okkur rass..... vorum á Days Inn Mall Of America, bara liggur við á bílastæðinu hjá mallinu, bara þæginlegt. Var líka mjög gott veður, en við vorum mest allan tímann í búðum.
Elías Karl útskrifaðist úr leikskólanum og var rosa flott leikrit hjá krökkunum.



Júní
Setti á mig 5 tattoið
Fór í útskrift hjá Hörpu vinkonu.
Fórum til Noregs, ferðin gékk mjög vel og Ek mara nokkuð stilltur. Í Tromsö þeyttumst við útum allt, inn á söfn, löbbuðum alveg rosalega mikið og Elías Karl alveg furður hress með þetta allt saman. Hittum alveg endalaust af fólki, fóru til Kårvika og á Skaland til farmor og mormor. Fórum á fjellheisen, Hella og röltum Tromsöbrua, Einar varð að geta komið heim og geta sagst hafa labbað til Noregs (yfir á fastlandið)



Júlí
Komum heim frá Noregi 2 júlí, Ísól, Snorri og krakkarnir komu í heimsókn og vá hvað var gaman að hitta þau aftur eftir allan þennan tíma sem þáu eru búin að búa úti.
Brunuðum norður á Húsavík i afmæli hjá pabba og hentumst svo suður aftur morguninn eftir, hörku keyrsla, mæli ekki með svona skreppitúr með Ek afterí. Næst verður stoppað allavega í 2 nætur.
Við einar fórum á Hereford að borða í tilenfi 1 árs brúðkaupsafmælisinns.
Fórum á ættarmót Merkinga og var það svaka stuð eins og áður.



Ágúst
Verslunarmannahelgini eyddum við í bústaðnum góða á Signyjarstöðum og komu Þóra, guðjón og börnin og voru hjá okkur eina nótt og elduðum saman og svilað fram á rauða nótt.
Fórum í bæinn að sjá Gay pride gönguna, árlegur viðburður sem maður missir ekki af.
Ættarmót fyrir austan, kaffiboð.
Fann rakaskemmdir í veggnum milli herbergid og baðherbergis og við fluttum samstundis fram í stofu og tæmdum skápinn af fötum og fórum svo í frí til Dk.
Ferðin út gékk mjög vel, EK voða spenntur. Kíktum á strikið fyrsta daginn og hittum Evu úr vinnuni. Fórum í dyragarinn og ég hitti Mása bró. Fórum í Tívolí og fannst EK það valveg mergjað. Frábær ferð í alla staði.
Lagði á mig 10 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoninu, náði ekki alveg jafn góðum tíma og í fyrra, en ég fór alla leið, það er fyrir öllu.
Tók að mér aukastarf við að leita að veggjakroti, algerlega snilldar vinna.
Byrjaði að brjóta allt niður hérna heima og það endaði með að ég náði mér í sleggju og veggurinn blauti fékk að fjúka. Veggurinn var 99% rakur og héðan fór allt ít í svörtum ruslapokum útaf sveppnum, fötin voru öll þvegin 3 sinnum með sérstökum efnum.
Elías Karl byrjaði í skóla, mikil viðbrygði.



September
Baðherbergið stendur bara autt og svefnherbergið okkar líka. Allt þarf að þorna vel núna og er ég búin að spreyja sveppaeyðandi á þetta allt. Við sváfum í stofuni og fórum í sturtu í sundlaugini eða hjá tengdó.
60 afmæli hjá Guggu á Park Inn, glæsileg veisla í alla staði.
Tíndum rifsber í Kjósini, Þóra og krakkarnir líka. EK lék aðalega við hundana á staðnum.
Jenny sem var með mér í barnaskóla kom til landsinns og buðum við henni og vinkonum í kaffi, gaman að hitta fólk sem meður hefur ekki séð í 10 ár.



Október
Keyrt var á bílinn minn og stundið af, ógeðslega pirrandi.
Fyrsti snjórinn kom og þá enginn smá snjór, akkurat þegar ég var að bruna út á völl að sækja Mása, en það gékk, tók aðeins lengri tíma en vanalega.
Pálmi kom að hjálpa okkur að setja upp vegg, þvílíkur bjarvættur. Ég er nebbla mun flinkari í að rífa en að setja upp aftur. En svo var spaslað og kíttað og málað og við gátum svo flutt aftur inn í herbergi, eftir 2 mánaða dvöl í stofuni. En við búum bara í ferðatöskum þar sem það þarf að sérsmíða skáp inn í herbergið.
Byrjuðum að setja upp fyrstu plöturnar á veggina inná baði, töluvert vesen en gékk. Kreppann var skollin á og við fengum ekki allar plöturnar því ÞÞ fengu ekki gjaldeyri til að leysa út gáminn sinn. Þannig að við tók meiri bið.



Nóvember
Héldum Halloween party hérna heima með kreppubaðherbergi, vorum svo um nóttina á Hilton, alveg yndislegt að geta bara labbað út og komið heim að þrífa daginn eftir.
Fluttum upp í Breiðholt í nokkra daga á meðan við vorum klósettlaus.
Afmælismánuðurinn mikli, bíllinn fór í rándyra 1 árs skoðun, haldið var upp á 6 ára afmæli hjá EK og 25 ára afmlið mitt, Einar fékk að vera með en fékk þó með sér köku í skólann.
Elías Karl keppti á Silfurmóti ÍR á afmælisdaginn sinn og gékk bara mjög vel.
Ég fékk uppsagnarbréf frá vinnuni, gæti ekki komið á heppilegri tíma eða þannig, en á maður ekki alltaf að vera bjartsynn og sjá að það kemur bara eithvað betra, þrátt fyrir erfiða tíð.



Desember
Mánuðurinn sem maður borðar og borðar, hlaðborð hér og hlaðborð þar.
Fórum á Laugaveginn að sjá jólalest Cocoa Cola.
Komum upp baðkarinu og ég skellti mér í bað sama kvöld, þótt blöndunartækin voru ekki komin, ausaði bara úr vaskinum yfir í baðið.
Sóttum jólatré í Fossá, árlegur viðburður, með smákökum og kakó. Var líka alveg æðislegur jólasnjór þá, sem hvarf svo fyrir jólin.
Fórum ekki á Laugaveginn á þorláks, en það er held ég í fyrsta sinn í mörg ár. En það var vont veður og vorum við heima ða skreyta tréð og horfa á jólamynd og hafa það kósy.
Aðfangadagur var rólegur, EK vaknaði og horfði á barnatíma og við sköturnar lágum upp í rúmi til 10, fórum í kirkjugarðinn og svo til mömmu í möndlugraut. Ek fékk möndluna, svo fórum við heim og tók við eldamennskan, allir í bað og Ek var ótrúlega rólegur, borðuðum og svo var farið í pakkana. Tókum íspásu áður en pakkarnir voru kláraðir.
Hangikjöt hjá mömmu á jóladag, annar í jólum fór bara í leti, 25 ára afmæli hjá Þóru 27 des, jólakaffiboð hjá mömmu 28 des.
Var að vinna svo milli jól og nyjárs og til hádegis á gamlárs, óvenjuleg áramót hjá okkur, en við vorum bara 3 heima en höfðum það gott og sprengdum upp bankastjórana á miðnæti, geri aðrir betur. Við leggjum svo bara bjartsyn af stað í nyja árið.
Gleðilegt ár kæru vinir.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt nýtt ár!
Ísól, Snorri, Óskar og Ísabella.

Eva sagði...

Ansi viðburðarríkt ár hjá ykkur :-)

Nafnlaus sagði...

jey jey loksins kíki ég á bloggið þitt eftir langa pásu hehe :)
Góður pistill - er að hugsa um að fara að skella í einn slíkann líka :)

knús yfir hafið