sunnudagur, febrúar 15, 2009
2009 virðist ekki ætla að verða bloggár, en hver veit
Hendi inn smá færslu, veit ekki hvort einhver kíki hérna inn lengur. En já febrúar er hálfnaður og ég á 2 vinnuvikur eftir. Já það gerir heila 10 vinnudaga, það verður eflaust dáldið skrítið og ég held að ég eigi eftir að halda ða ég sé bara í fríi til að byrja með. Maður er alltaf að skoða hvað er í boði og senda inn umsóknir, en það er fátt um svör. Alveg óþolandi að sækja um vinnu og fá ekki einusinni skitið mail til baka. Ég á öruglega eftir að vera eithvað í skólanum hjá Ek til að byrja með, allavega sitja inni í þeim tímum sem eru vandræði, eins og dans sem virðist ekki alveg vera í uppáhaldi, skil það ekki, barnið dansar og dansar hérna heima. Svo er það að klára baðherbergið sem er búið að vera í pásu núna, bara 2 plötur og gólfið eftir, jú og reyndar listi hringum gluggan, en við finnum einhverntímann eithvað sem passar þar. Vonandi náum við að kíkja í heimsókn til Heiðu og Bjössa í London, en það fer nú svoldið eftir þeirra plönum og högum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
kvitt kvitt ;)
saknaðarkveðja
HArpan
Kvitt kvitt :-) hef greinilega ekki verið sú duglegasta að taka bloggrúnta undanfarið.
Skrifa ummæli