þriðjudagur, mars 17, 2009
Mars
Er ekki kominn tími á smá færslu hérna. Núna er ég heima á daginn og hef sko ekki haft lítið að gera, alltaf eithvað að gera og svo einn og einn dagur sem fer í að skúra, skrúbba og bóna og baka, það kætir sko strákana mína. Við Einar skelltum okkur á árshátíð Icelandair Group á laugardaginn var. Við vorum alveg svakalega flott, haha alveg í 60´s fíling, enda var þemaið 55-65. Tengdamamma greiddi mér, var sko þvílíkt túperuð og með slöngulokka og Einar vatnsgreiddur. Ja það er svona það sem búið er að gerast hér fyrir utan að ég bara stækka og það er sparkað hingað og þangað og Elías Karl fékk að finna um helgina. Ég fékk líka rosalega sætann pakka frá Hörpu minni í dag, alltaf svo gaman að fá pakka. Ja ég er greinilega alveg komin úr æfingu eða bara voðalega lítið merkilegt að gerast hjá mér, læt þetta duga í bili.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Eitthvað er nú alltaf betra en ekkert segi ég :-)
já blogg er alltaf blogg :) ! gott þú varst ánægð með pakkann :).
Skrifa ummæli