Ég hef nú ekki mikið verið á ferðini undanfarið, en þær ferðir sem ég hef farið út í umferðina hef ég tekið eftir óeðlilega mörgum bílum sem eru númeralausir að framan. Velti fyrir mér hvort þetta sé "leið" til að sleppa við umferðasektir frá myndavélum. Númeraplötum hefur ekki það mikið verið stolið að ég mæti 7 bílum í sama hverfi sem vantar númer á og bara að framan.
Önnur hugleiðing er sumar og frjókorn, eins og sumarið getur verið æðislegt er þessi fjandans fylgikvilli ekki í miklu uppáhaldi. Svo núna er ég bókstaflega að kafna, hélt fyrst að ég væri bara kvefuð, en svo fór maður nú að pæla að Birki tímabilið er að byrja. Byrjaði að leita að frjótölum en mbl eru svo æðislegir að uppfæra hjá sér vikulega nema að samkvæmt því er enn ágúst 2008 hjá þeim.
Já annars er bara lítið að frétta, margt sem manni langar að gera, en kem mér bara ekki alveg af stað, skil það ekki. Erum að vinna í að klára baðherbergið loksins, svo þarf nú að taka til hendini í garðinum, og reyna að koma sér til USA að versla smá, verður bara spurning hvenar og hvert verður farið.
mánudagur, apríl 27, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Áhugaverðar pælingar með bílnúmerin... maður ætti kannski að hafa augun opin :p
Er ekki annar spurning að senda mbl smá póst og minna þá á að uppfæra ;) eða finna original source-inn :p
Skrifa ummæli