... já það er búið að vera sumar á Íslandi í nokkra daga og maður er sko búin að njóta þess. Byrjum kanski á Bostonferðini, fórum út 8 mai og komum heim 12. Elías Karl stóð sig eins og hetja í gegnum þetta langa, stutta ferðalag. Hann svaf ekki í vélini á leiðini út þannig að klukkan á Íslandi var orðin 1.30 þegar við komum á hótelið. Við tókum svo bara verslunartúrinn í skipulagðri röð og Ek var alveg tiltulega sáttur með þetta. En hann fékk að kaupa sér líka smá dót fyrir utan það að við vorum að fata hann upp. illa gékk að fá hann til að samþykja föt sem ekki voru með hauskúpu á, en hann er núna nánast að breytast í hauskúpu, tímabil eins og allt annað skulum við vona. Tókum líka góðan sundsprett, aðalega EK þar sem laugin var svo köld og ég lá eins og skata í sólini á meðan. Síðasti dagurinn fór í að rölta á Newbery og enduðum svo í Bostun public garden þar sem EK fékk að hlaupa um og skoða íkornana og svona. Komum heim á þriðjudagsmorgni og við Ek fórum heim að sofa smá en Einar skellti sér í vinnuna.
Aftur að góða veðrinu hérna heima, við vorum síðustu helgi mikið utandyra að sleikja sólina, fórum á listahátíð og í sund og út að labba og svona kósy. Ég er svo búin að taka törn í gólfinu inni á baði og þetta er að verða búið, bara erfitt að vera innandyra þegar það er gott veður. Þessvegna tek ég smá syrpu á morgnana og kem mér svo út. Svo á nú að byrja að rigna hérna á morgun eða hinn og þá leggur maður í lokasprettinn og klárar þetta baðherbergi í eitt skipti fyrir öll.
fimmtudagur, maí 21, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli