laugardagur, október 10, 2009
Skoðar einhver þessa síðu enþá???
Allavega skrifa smá ef það er einhver sem kíkir inn. Við allavega fórum æðislega hringfer í júní og fékk ég að sjá ansi margt flott í þessari ferð. En eins og margir vita þekki ég landið ekkert allt of vel. Við eyddum 9 dögum í þennan hring, gistum í Reykhólum, Ólafsfirði, Húsavík, Egilsstöðum, Atlavík og Höfn. En þá var líka bara brunað heim, enda ég orðin ansi þreytt og vildi fara að sofa í mínu rúmi aftur. Lítil prinsessa leit síðan dagsinns ljós 11. ágúst og er bara alveg yndislegust. Fékk síðan nafnið Victoría Dís 13. september. Núna er bara veturinn kominn í gang og þarf maður aftur að venjast roki, rigningu, snjó og stormi eftir langt og gott sumar. En við erum þegar búin að kynnast því að vera föst uppi á heiði og stormviðvörun, þannig að maður verður bara að venjast þessu fljótt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli